top of page

Jólakaffihús í ólafíustofu

tir. 09. des.

|

Sankt Hanshaugen

Tickets are not on sale
See other events
Jólakaffihús í ólafíustofu
Jólakaffihús í ólafíustofu

Time & Location

09. des. 2025, 16:00 – 20:00

Sankt Hanshaugen, Pilestredet Park 20, 0890 Oslo, Norway

About the event

Þann 9. desember bjóða Íslendingafélagið í Osló og Íslenska kirkjan í Noregi upp á jólakaffihús í Ólafíustofu.

Kaffihúsið verður opið öllum frá 16:00 - 20:00. Um að gera að kíkja á jólamarkaðinn í bænum fyrst og koma svo til okkar í hlýjuna. Við verðum með jóla smákökur, heitt kakó og kaffi, jólaföndur fyrir börnin og ljúfa jólatónlist.

Íslendingafélagið verður með íslenskt nammi til sölu og svo verða örfá söluborð með jólagjöfum sem eru unnar af Íslendingum í Noregi. Aldrei að vita nema hægt verði að kaupa laufabrauð og lagtertu á staðnum líka.


Við hvetjum ykkur til þess að rölta svo á jólatónleikana hjá Benjamín Gísla píanóleikara eftir kaffihúsið og fullkomna um leið jólastemninguna.

Upplýsingar um tónleikana hjá Benjamín Gísla finnið þið hér:


https://fb.me/e/5k8genYVk

Share this event

isioslo@gmail.com

-Org 971280417-

  • alt.text.label.Instagram
  • alt.text.label.Facebook

©2025 by Íslendingafélagið í Osló og nágrenni

bottom of page