Jólaball
søn. 14. des.
|Bydel Østensjø
Jólaballið okkar í samvinnu við íslensku kirkjuna


Time & Location
14. des. 2025, 14:00 – 16:00
Bydel Østensjø, General Ruges vei 51, 0691 Oslo, Norway
About the event
Íslendingafélagið í Osló í samvinnu við Íslensku kirkjuna í Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð 14. desember kl.14 í Bøler kirkju í Osló.
Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!


