Velkomin á heimasíðu Íslendingafélagsins í Osló

Markmið Íslendingafélagsins er að efla samheldni og félagslíf félagsmanna, svo og að vinna að sameiginlegum hagsmunum þeirra.
Ennfremur vinnur félagið að því að stuðla að félagslegum og menningarlegum samskiptum Íslendinga og Norðmanna.


"Opið hús" verður hjá félaginu fimmtudagana 15. og 29.  apríl kl. 14 - 16 að Arbeidersamfunnets pl.1, (5.hæð, neðsta bjallan) 0181 Oslo.  Lokað verður í sumar!




 Fréttir
Laugardaginn 19. júní höldum við Íslendingar í Osló og nágrenni upp á þjóðhátíðardag íslenska lýðveldisins. 17. júní ber upp á fimmtudag í ár svo að laugdagurinn hentar betur hér í Noregi.

Dagskráin hefst kl. 14:00 í Nordberg kirkju þar sem hátíðarræða verður flutt og íslensk börn verða skírð.

Fjallkonan fer með ættjarðarljóð, Ískórinn syngur ættjarðarlög og lúðrasveit spilar með. Andlitsmálning og leiktæki verða á svæðinu fyrir börnin!

Að sjálfsögðu verður gengið með lúðrasveitinni í skrúðgöngu og að henni lokinni verður kaffi í safnaðarheimilinu, og að sjálfsögðu verða til sölu grillaðar SS Pylsur, fánar og blöðrur og ekta íslenskt nammi!

Þetta er ekki tæmandi dagskrá, en það er ljóst að það verður nóg að gerast laugardaginn 19. júní hjá okkur!

Vonumst til að sjá ykkur sem flest, ef ekki bara öll!

Íslendingafélagið í Osló

  
Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið hér í Osló sunnudaginn 20. júní næstkomandi.

Hlaupið verður í kringum Sognsvann eins og í fyrra, en sá hringur er 3 km.
Vegalengdir sem verða í boði eru 3km, 6km og 9km

Skráningargjald er 60kr. og er seinasti skráningardagur föstudagurinn 14. maí!
Bolirnir í ár eru fallega appelsínugulir!

Skráning þarf að berast á isioslo@gmail.com og skráningargjald skal millifæra á reikning 6019.05.31417 og muna að setja nafn og "hlaup" í skýringu!
T.d. "Gudrun Gunnarsdottir hlaup"

Hlaupið hefst kl. 13:00 og verða nánari upplýsingar sendar þátttakendum, og aðgengilegar hér, þegar nær dregur hlaupinu!

Skráið ykkur sem fyrst og rífið fram hlaupaskóna og byrjið að æfa!

!!ATH!! SKRÁNINGARFRESTUR ER 14. MAÍ !!ATH!!

  
Vinnuferð verður í Norefjell húsið helgina 7.-9. maí! Húsið verður þrifið, vetrargluggar teknir niður, garðurinn tekinn í gegn eftir veturinn, stillansar teknir niður, bryggjan dregin út og garðhúsgögnum komið fyrir í garðinum. Allir eru velkomnir, og er þetta upplagt til þess að kynnast nýju fólki! Þeir sem hafa áhuga, VERÐA að senda tölvupóst á norefjellhuset@hotmail.com og skrá sig. Þetta er til þess að hægt sé að reikna hversu mikið af mat þarf að kaupa ofan í liðið! Gisting er auðvitað frí og einn kvöldmatur, annars þarf fólk að koma með mat og drykki fyrir sig sjálft, ásamt svefnpokum. Hvetjum alla til þess að mæta!
  
Kæru félagar, fjölmennið á aðalfund félagsins n.k. miðvikudag kl. 18 á skrifstofu íslenska safnaðarins í Noregi, Arbeidersamfunnets pl. 1 (5.hæð), 0181 Osló
  
Nyheter Norskukennsla
Við erum búin að finna "norskukennara" sem er tilbúin að kenna eftir páska 2x í viku, nánari uppl. í síma 92864616 og skráning á: andreudottir@hotmail.com
  
Nyheter Bjórkvöld!
Eins og fram kom í fréttabréfi Íslendingafélagsins þá stendur félagið fyrir bjórkvöldi fyrsta föstudag hvers mánaðar, en þar sem fyrsti föstudagur aprílmánaðar er um páskahelgina og margir væntanlega á ferðalagi, þá verður bjórkvöldið haldið seinasta föstudag í mars, eða þann 26.

Mæting er kl. 20:00 en fólki er auðvitað velkomið að mæta fyrr! Staðurinn heitir Destiny Cafe og er í Skippergata 26. Ef gengið er upp Karl Johans Gate frá Oslo S / Østbanehallen er staðurinn í fyrstu götu til vinstri.

Gott verð á bjór á barnum!!


Vonumst til að sjá sem flesta!
Kveðja, Skemmtinefndin

  
Nyheter AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Osló verður haldinn miðvikudaginn 14. apríl kl. 18 í húsnæði félagsins, Arbeidersamfunnets plass 1, (5. hæð, neðsta bjallan) 0181 Osló.
Félagar eru hvattir til að mæta!

  skoða nánar...


Copyright (c) 2010 Islandsforeningen       Login
 
Kíktu á okkur á Facebook!

Icelandair í Noregi