Félagið

Velkomin á vef Íslendingafélagsins í Oslo

Íslendingafélagið hefur það að markmiði að efla samheldni og félagslíf, og vinna að sameiginlegum hagsmunum félagsmanna. Allir Íslendingar búsettir í Noregi geta gengið í félagið. Einnig geta aðrir sem sýna íslenskum málefnum áhuga, líka gengið í félagið.

Í dag eru um 400 meðlimir skráðir í félagið. Íslendingafélagið stendur fyrir þjóðhátíðarskemmtun ár hvert í samstarfi við íslenska söfnuðinn í Noregi. Þorrablót er fastur liður og hefur aðsókn vaxið ár hvert. Með virku félagslífi og þátttöku félagsmanna getur félagið boðið upp á ýmsa aðra skemmtun.  s.s. félagsvist, tónleika, skötukvöld, Saltkjöt og baunir, eða annað sem félagsmenn hafa áhuga á. Símanúmer formannsins er: +47 456 80 448 og e-mail isioslo@gmail.com

Eitt af aðalsmerkjum félagsins er  Íslendingahúsið við Norefjell. Húsið er einstaklega fallegt og rúmgott. Það liggur undir fjallinu Norefjell sem er eitt af vinsælustu skíðasvæðum í Noregi og rétt við vatnið Kröderen.

Íslendingafélagið í Osló er elsti starfandi félagsskapur Íslendinga í Noregi.

Það var stofnað 1. desember 1923.

Félagið á og rekur húseignina 
Íslendingahúsið við Norefjell sem keypt var 1967. Miklar endurbætur hafa verið gerðar í húsinu síðan, nánast eingöngu af félagsmönnum.

Íslendingafélagið leggur metnað sinn í gott samstarf með öðrum félögum Íslendinga í Ósló og nágrenni.

Leikhópurinn KEX hefur staðið fyrir ýmissi skemmtan á mannamótum Íslendingafélagsins og ekki má gleyma Ískórnum sem hefur verið fastur liður í allri hátíðarskemmtan Íslendingafélagsins. Einnig hefur Íslenski söfnuðurinn í Noregi verið dyggur samstarfsaðili Íslendingafélagsins í gegnum tíðina.
 

Copyright (c) 2010 Islandsforeningen       Login
 
Kíktu á okkur á Facebook!

Icelandair í Noregi